Vá hvað ég er orðinn óþarflega pirraður á þessu ástandi hérna... Gjaldeyrisvesenið er að pirra mig allsvakalega núna.
Mig langar alveg óþarflega mikið í teikniborð í stærðinni A4. Tölvulistinn rukkar tæpar 120 þúsund krónur fyrir svoleiðislagað og það er sérpöntun. Ég fór og fann út að á Amazon kostar þetta græjelsi 404 dollara sem gera rúmlega 40þúsund íslenskar krónur.
Þar munar 80 þúsund krónum og ég pirraðist. Mér hefur fundist sem ég geti alltaf marfaldað tölur með 2 og fái þá nokkurnvegin það sem það kostar heim komið ef ég flyt það sjálfur inn. Oft fer ég líka á ShopUSA.is til þess að sjá hvað þeir myndu kosta á þetta svona til viðmiðunnar og þar kostar þetta mig heimkomið 73 þúsund sem er innan við helming frá upphaflegri upphæð... DJÖFULL ER ÉG PIRRAÐUR YFIR ÞESSU DRASLI...
Bull!














